Af hverju heimasíða

Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.

Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.

Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:

 

     Lýðheilsustöð

Forsíða Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum. Smella á myndina til að skoða bæklinginn


Geðheilsa
Geðheilsa er hverjum manni nauðsynleg. Í þeim efnahagslegu þrengingum, sem þjóðin gengur nú í gegnum, má ætla að geðheilsa vinnandi fólks sé ofarlega í huga atvinnurekenda. Nú er tími til að hlúa að henni því heilsufarsvandamál geta komið fram í ástandi sem þessu. Að huga að geðrækt á vinnustað snýst meðal annars um heilsusamlegt og hvetjandi starfsumhverfi, gott skipulag, jákvæðni og virðingu og er til þess fallin að efla samhug. Geðrækt felur einnig í sér að vel sé hugað að þeim sem finna fyrir einkennum þunglyndis eða annarri andlegri vanlíðan.  Ánægðir starfsmenn afkasta meiru sem skilar sér í ávinningi fyrir vinnustaði og í raun þjóðfélagið í heild. Við teljum að með því að auka skilning á mikilvægi geðheilsu og geðræktar og hvetja fyrirtæki og stofnanir til dáða í þeim efnum sé hægt, þegar fram í sækir, að auka samkeppnishæfni fyrirtækja og stofnana.


© 2005 Vinnueftirlit ríkisins | Landsnet um heilsueflingu á vinnustöðum Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - sími 550-4600 - heilsuefling@heilsuefling.is