Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.
Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.
Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:
Landsnet um heilsueflingu á vinnustöðum
Vinnueftirlitið hefur síðan árið 1997 tekið þátt í samstarfsneti Evrópuþjóða (European Network for Workplace Health Promotion) sem hefur það að markmiði að efla heilsu og forvarnir á vinnustöðum. Lögð hefur áhersla á að efla samstarf ýmissa hagsmunaaðila í hverju landi fyrir sig og mynda innanlandsnet um heilsueflingu í öllum þátttökulöndum Evrópu. Stofnfundur Landsnets um heilsueflingu á vinnustöðum á Íslandi var haldinn 12. maí 2003 og er það hýst hjá Vinnueftirlitinu.
Hlutverk landsnets um heilsueflingu á vinnustöðum
Með þessu starfi er ætlunin að umræða um lýðheilsu og vinnuvernd fái greiðari aðgang að vinnustöðum. Hugtakið heilsuefling á vinnustað er skilgreint vítt í þessu samhengi og felur í sér að bæta líkamlega, andlega og félagslega færni vinnandi fólks. Starfsemi netsins er ætlað að ná athygli ráðandi afla í þjóðfélaginu, stuðla að því að umræða um lýðheilsu og vinnuvernd fái greiðan aðgang að íslenskum vinnustöðum, auka almennan skilning á gildi heilsueflingar á vinnustöðum og auka ábyrgð og þátttöku þeirra sem í hlut eiga, þ.e. vinnuveitenda, starfsfólks, stjórnenda, félagasamtaka, fagfólks og hins opinbera. Aðild að landsnetinu eiga ríkisstofnanir, ráðuneyti, félagsamtök, fulltrúar vinnuveitenda og stéttarfélaga, vinnustaðir og sveitarfélög. Landsnet um heilsueflingu á vinnustöðum er hýst hjá Vinnueftirlitinu og er opið öllum vinnustöðum. Ása G. Ásgeirsdóttir (asa@ver.is) er verkefnisstjóri landsnetsins
Starfsemi innanlandsnets um heilsueflingu á vinnustað er ætlað að:
• auka skilning á gildi heilsueflingar á vinnustöðum og stuðla að aukinni ábyrgð og þátttöku þeirra sem í hlut eiga þ.e. vinnuveitenda, starfsfólks, stjórnenda, félagasamtaka, fagfólks og hins opinbera
• leiðbeina fyrirtækjum og stofnunum um hvernig hægt sé að koma á árangursríkri heilsueflingu á vinnustöðum
• að skapa umræðuvettvang um tengd efni svo sem gæðastjórnun og matsaðferðir.
• standa fyrir fræðslufundum, kynningum og útgáfustarfsemi
• miðla reynslu og upplýsingum í fréttabréfi, á netinu og á reglulegum fundum
• koma vinnustöðum er sýna góð fordæmi í heilsueflingu á framfæri opinberlega