Af hverju heimasíða

Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.

Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.

Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:

 

     Lýðheilsustöð

Forsíða Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum. Smella á myndina til að skoða bæklinginn


tóbaksvarnir

Tóbaksvarnir
Reykingar eru algengasta orsök margra sjúkdóma og ótímabærra dauðsfalla. Reykingar valda mörgum banvænum sjúkdómum, s.s. krabbameini, hjarta- og æðasjúkdómum auk langvarandi veikinda og heilsubrests sem skerðir lífsgæði fólks verulega, oft langt um aldur fram.

Reykingar eru ekki aðeins skaðlegar þeim sem reykja heldur öllum sem í kringum þá eru. Ekki er til það loftræstikerfi sem ræður við að hreinsa reykmettað andrúmsloft þannig að tryggt sé að það sé skaðlaust. Í ljósi þessa eru reyklausir vinnustaðir eina leiðin til að tryggja öruggt umhverfi hvað þetta varðar. Samkvæmt vinnuverndar- og tóbaksvarnalögum ber vinnuveitanda að vernda starfsfólk gegn óbeinum reykingum í vinnunni.

Minni tóbaksnotkun starfsmanna hefur ekki aðeins góð áhrif á heilsu fólks heldur getur það líka verið fjárhagslega hagkvæmt fyrir vinnustaði. Með minni tóbaksnotkun er líklegt að draga megi úr veikindafjarvistum og auka afköst og framleiðni. Rannsóknir sýna að þeir sem reyja eru meira frá vegna veikinda en þeir sem ekki reykja. Auk þess tekur um 7 mínútur að reykja hverja sígarettu, þetta geta numið 70 mínútum af vinnutíma ef reyktar eru 10 sígarettur á dag.

Í ljósi heilsuspillandi og fjárhagslegra áhrifa tóbaksnotkunar ættu tóbaksvarnir að vera grundvallaratriði í heildrænni heilsueflingarstefnu vinnustaða. Gott er að hafa í huga að tóbaksvarnir, streitustjórnun og hvatning til hreyfingar geta stutt hvert annað mjög vel.

Leiðir í tóbaksvörnum á vinnustöðum
Gott er að byrja á því að meta stöðu tóbaksvarna og tóbaksnotkun starfsmanna. Kanna mætti hve margir starfsmenn nota tóbak og hvaða tóbak, áhuga fólks á að hætta og hvaða aðferðir þeim hugnast að nota. Kanna mætti hvort farið er að tóbaksvarna- og vinnuverndarlögum á vinnustaðnum, hver núverandi stefna er og hvaða viðhorf starfsmenn hafa til tóbaksnotkunar á vinnustað.

Tóbaksvarnastefnan ætti að taka til fræðslu, úrræða og stuðnings við að hætta tóbaksnotkun, aðgerða til að stuðla að reyklausu umhverfi og hvernig bregðast á við notkun reyklauss tóbaks á vinnutíma.

Hvatning og stuðningur til að hætta tóbaksnotkun
Vinnuveitandi getur gegnt aðalhlutverki við að hvetja og styðja fólk sem vill hætta tóbaksnotkun. Einn þáttur tóbaksvarnastefnu ætti að lúta að reykleysisaðstoð. Hér eru gagnleg atriði sem nýta má í tóbaksvarnastefnunni:
• Gagnlegt er að veita starfsmönnum upplýsingar um neikvæðar afleiðingar tóbaksnotkunar. Þetta getur leitt fólk nær því marki að ákveða að hætta tóbaksnotkun en dugir yfirleitt ekki eitt og sér til að fólk hætti.
• Gott er að vekja athygli og skapa umræður um þau stuðningsúrræði sem í boði eru fyrir þá sem vilja hætta tóbaksnotkun, t.d. Reyksíminn: 8006030, heimasíðan reyklaus.is og ýmis námskeið. Upplýsingar um úrræðin og hvernig best er að nálgast aðstoðina ættu að vera starfsfólki aðgengilegar, t.d. á innra neti eða í fréttabréfi vinnustaðarins.
• Æskilegt  er að bjóða reykleysisaðstoð á vinnustað á vinnutíma ef næg þátttaka er fyrir hendi. Það hvetur starfsmenn til að leita sér aðstoðar ef vinnustaðurinn leyfir þeim að gera það á vinnutíma eða greiðir fyrir aðstoðina (að hluta eða öllu leyti) hvort sem hún fer fram á vinnutíma eða ekki.
• Sum stéttarfélög greiða niður aðstoð við að hætta að reykja. Rétt er að segja starfsfólki frá því.
• Gott er að byggja upp stuðningskerfi starfsmanna. Hægt er að bjóða starfsfólki, sem vill aðstoða aðra við að hætta, stutta þjálfun í bestu aðferðunum til þessa og veita þeim svigrúm til að styðja við samstarfsfólk eftir þörfum.
• Það getur ýtt undir reykleysi meðal starfsmanna að taka þátt í samkomum eða viðburðum í samfélaginu sem tengjast tóbaksvörnum, t.d. keppni til reykleysis, og nýta slíka viðburði til að hvetja og styðja starfsmenn til að hætta tóbaksnotkun.


Reyklaust vinnuumhverfi
• Nauðsynlegt er að fara að tóbaksvarnalögum en einnig er algengt og sjálfsagt að vinnustaðir gangi lengra en lög kveða á um. Nauðsynlegt er að skýrt komi fram hvar má reykja og hvar ekki (bæði úti og inni) og hvers er vænst af starfsfólkinu, t.d. aðeins leyfðar reykingar í hádeginu.
• Eina örugga leiðin til þess að vernda fólk fyrir óbeinum reykingum er algjörlega reyklaust vinnuumhverfi.
• Hægt er að leyfa reykingar utan dyra en gæta skal þess að ekki sé reykt við opna glugga, dyr eða loftinntök (hvorki við húsnæði vinnustaðarins né annarra).

Notkun reyklauss tóbaks á vinnutíma
Þar sem að reyklaust tóbak skaðar ekki aðra en þá neyta þess getur reynst erfiðara fyrir vinnuveitanda að bregðast við notkun þess en reykingum. Forsvarsmenn vinnustaða, sérstaklega þeirra sem veita þjónustu, ættu hins vegar að velta fyrir sér hvort það samræmist stefnu þeirra og þeirri ímynd sem þeir vilja hafa að starfsfólkið neyti tóbaks á meðan á vinnu stendur.

Tóbaksvarnir á vinnustað ættu ávallt að vera hluti af heildrænni heilsueflingarstefnu á vinnustöðum – ekki átak í eitt skipti.

 

 





© 2005 Vinnueftirlit ríkisins | Landsnet um heilsueflingu á vinnustöðum Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - sími 550-4600 - heilsuefling@heilsuefling.is