Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.
Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.
Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:
Hreyfing
Rannsóknir sýna að hreyfing gegnir lykilhlutverki varðandi heilbrigði og almenna vellíðan fólks. Þeir sem hreyfa sig reglulega minnka líkurnar á að fá ýmsa langvinna sjúkdóma, svo sem hjarta- og æðasjúkdóma, áunna sykursýki, sum krabbamein, þunglyndi, offitu og ýmis stoðkerfisvandamál. Umfram allt eykur hreyfing líkurnar á að lifa lengur við betri líðan og heilsu.
Þrátt fyrir að fjölþættur ávinningur hreyfingar sé vel þekktur hefur meðal annars hröð tækniþróun síðustu ár og áratugi stuðlað að því að hreyfing er hverfandi hluti af daglegu lífi fólks. Fólk notar í vaxandi mæli vélknúin farartæki og atvinna og ýmis heimilisverk krefjast minni líkamlegrar áreynslu en áður.
Almennar hreyfiráðleggingar miðast við að fullorðnir hreyfi sig rösklega á hverjum degi í minnst 30 mínútur samtals. Tímanum má skipta upp í nokkrar einingar yfir daginn, t.d. 10-15 mínútur í senn. Hreyfing til heilsubótar þarf því ekki að vera tímafrek en samt sem áður er tímaskortur ein algengasta skýringin sem fólk gefur fyrir hreyfingarleysi. Í ljósi þess hversu margir verja stórum hluta vökutíma síns í vinnunni er afar mikilvægt að á vinnustaðnum sé stuðlað að hreyfingu.
Hreyfing starfsmanna – leið til að auka ánægju og afköst
Regluleg hreyfing veitir fólki meiri andlegan og líkamlegan styrk til að takast á við dagleg verkefni í vinnu og heima. Að hreyfa sig saman getur einnig veitt samstarfsfólki tækifæri til að kynnast nánar á jafningjagrundvelli, óháð því hvaða stöðu það gegnir. Rannsóknir hafa leitt í ljós að vinnustaðir, sem stuðla að meiri hreyfingu starfsfólks, eru líklegir til að uppskera:
• þrekmeira og heilsuhraustara starfsfólk
• bætt samskipti og aukna starfsánægju
• betri starfsanda og öflugri liðsheild
• fækkun veikindadaga og lægri slysatíðni
• minni starfsmannaveltu
• meiri framleiðni
• jákvæðari ímynd
Þessu til stuðnings má nefna að í tengslum við kanadíska verkefnið Active Living at Work hefur verið safnað ýmsum gagnlegum upplýsingum um heilsueflingarverkefni sem hafa falið í sér meiri hreyfingu. Þar kemur meðal annars fram að fjárhagslegur ávinningur fyrirtækja, sem farið hafa í slík verkefni, hefur verið allt frá rúmum dollar á móti dollara upp í margfaldan hagnað. Atvinnurekendur eru ekki einir um að hagnast heldur nýtur starfsmaðurinn, fjölskylda hans og samfélagið í heild góðs af.
Leiðir til að stuðla að meiri hreyfingu starfsmanna
Mikilvægt er að marka raunhæfa stefnu, í nánu samstarfi við starfsmenn, sem miðar að meiri hreyfingu allt árið um kring og fylgja henni eftir með aðgerðum.
Vinnuveitendur geta bæði lagt sig fram um að skapa umhverfi, sem hvetur til hreyfingar, og veitt umbun og hvatningu til hreyfingar.
Skipulag og umhverfi sem hvetur til hreyfingar
• Fólk er líklegra til að nota stigann í stað lyftunnar ef stigagangurinn er aðlaðandi og aðgengilegur. Einnig er gott að hengja upp áminningu við lyftur um að „stiginn styrki”. Slíkt veggspjald er t.d. að finna á vef Lýðheilsustöðvar, www.lydheilsustod.is.
• Mikill kostur er að hafa aðstöðu til að fara í sturtu og skipta um föt. Það auðveldar fólki t.d. að hjóla eða ganga lengri vegalengdir til og frá vinnu og stunda ýmiss konar þjálfun í tengslum við vinnu. Eins er æskilegt að fólk hafi einhvern stað til að geyma hjólin sín.
• Skipulögð teygjuhlé hressa fólk og minnka líkurnar á ýmsum stoðkerfisvandamálum, ekki síst ef vinnan er einhæf kyrrsetuvinna, svo sem við tölvur.
• Skipulagðir æfingahópar veita hvatningu, aðhald og efla liðsandann. Hópana er hægt að starfrækja, eftir aðstæðum, hvenær sem er dagsins. Möguleikarnir eru nær óendanlegir svo sem ganga, stafganga, hlaup, sund, badminton, knattspyrna, golf, fjallganga og önnur útivist. Því fleiri sem hafa aðgang að slíkum hópum, í samræmi við getu og áhuga, því betra.
• Sveigjanlegur vinnutími veitir starfsmönnum svigrúm til að samræma hreyfingu sína vinnu- og fjölskyldulífi.
Fræðsla, hvatning og umbun
• Hægt er að hvetja fólk til og umbuna því fyrir að ganga eða hjóla til og frá vinnu og meðan á vinnutíma stendur. Þetta eflir ekki aðeins heilbrigði heldur sparar þetta um leið kostnað og ýmsan vanda vegna bílastæða. Til dæmis má greiða sambærilega eða jafnvel hærri upphæð fyrir notkun á hjóli en greidd er fyrir notkun á einkabíl.
• Heilsuræktarstyrkir eiga að stuðla að jöfnum tækifærum starfsmanna til að kaupa búnað til heilsuræktar og nýta sér ýmiss konar þjónustu, s.s. líkamsræktarstöðva, ferðafélaga, íþróttafélaga og sjúkraþjálfara. Þar sem áhugasvið fólks getur verið afar mismunandi er mikilvægt að reglur vinnustaðarins um slíka styrki veiti starfsmönnum svigrúm til að velja ólíkar leiðir til að rækta heilsu sína.
• Skrefamælar eru ódýr og áhrifarík tæki til að meta daglega hreyfingu. Algengt viðmið er að ná smám saman um 10.000 skrefum í heild yfir daginn.
• Sameiginleg þátttaka starfsmanna í ýmsum smáum og stórum almenningsíþróttaviðburðum er árangursríkt hópefli og mörgum hvatning til að hreyfa sig meira.
• Við val á gjöfum til starfsmanna er kjörið að hafa í huga ýmiss konar útbúnað og þjónustu sem hvetur til aukinnar hreyfingar.
• Þekking, viðhorf og trú á eigin færni eru dæmi um mikilvæga, einstaklingsbundna þætti sem hafa áhrif á hvort og þá hversu mikið fólk hreyfir sig. Því er gott að leita liðsinnis fagfólks, m.a. til að kenna rétta útfærslu æfinga, kynna nýjungar, mæla ástand og veita almenna- og einstaklingsmiðaða fræðslu og ráðgjöf.
Góð næring er undirstaða þess að starfsmenn hafi orku og löngun til að hreyfa sig. Þess vegna er mikilvægt að starfsfólk hafi góðan aðgang að fersku vatni og hollum mat.