Af hverju heimasíða

Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.

Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.

Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:

 

     Lýðheilsustöð

Forsíða Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum. Smella á myndina til að skoða bæklinginn


Heil og sæl í vinnunni (Move Europe)

Heilsueflingarverkefnið Heil og sæl í vinnunni er nú formlega hafið á Íslandi. Verkefnið er unnið í samvinnu við önnur Evrópulönd og ber heitið Move Europe á ensku. Hér á landi hefur Vinnueftirlit ríkisins umsjón með verkefninu sem unnið er í nánu samstarfi við Lýðheilsustöð.  Sjá nánari upplýsingar um verkefnið innan Evrópu hér.

Markmið verkefnisins er að auka vitund innan vinnustaða á mikilvægi þess að efla heilsu og forvarnir. Heilsuefling á vinnustöðum er góð fjárfesting í mannauði og skilar ávinningi fyrir vinnustaði jafnt sem starfsmenn. Ávinningur vinnustaða er meðal annars fólginn í minni kostnaði vegna veikinda, fjarvista og slysa ásamt því að framleiðni og nýsköpun eykst. Einnig hefur verið sýnt fram á að heilsuefling getur skilað sér í minni starfsmannaveltu. Ávinningur starfsmanna er hins vegar færri slys og sjúkdómar, bætt heilsa, aukin vellíðan og starfsánægja. Verkefninu er ætlað að hvetja til aðgerða þegar kemur að heilsueflingu á vinnustöðum og auka um leið heilbrigði starfsmanna. Lögð verður sérstök áhersla á eftirfarandi þætti: Hreyfingu, næringu, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuvarnir sem og streitu og andlega líðan.

Til þess að verkefnið skili sem mestum árangri er nauðsynlegt að fjölmargir aðilar taki höndum saman um að efla og styrkja heilsueflingu á vinnustöðum. Það er því mikilvægt að fulltrúar vinnumarkaðarins, stofnana, vinnustaða, félagasamtaka, sveitarfélaga ráðuneyta og fjölmiðla  taki þátt og styðji við bakið á verkefninu. 


Til þess að gerast þátttakandi í verkefninu þarf fulltrúi frá vinnustaðnum að senda inn þátttökutilkynningu sem finna má hér inn á síðunni. Mikilvægt er að verkefnið sé unnið þannig að stuðningur yfirmanna og virk þátttaka starfsmanna sé fyrir hendi en heilsuefling á vinnustöðum er sameiginlegt verkefni vinnuveitanda, starfsmanna og samfélagsins.

Framkvæmd verkefnisins fer í stuttu máli þannig fram að rafrænn spurningalisti hefur verið gerður aðgengilegur hér á síðunni. Með því að svara spurningalistanum gefst vinnustöðum kostur á að meta stöðu heilsueflingar og forvarna á vinnustaðnum út frá almennri stefnu og áðurnefndum áhrifaþáttum. Eftir að hafa svarað listanum fær vinnustaðurinn senda endurgjöf í tölvupósti. Þessi endurgjöf inniheldur hagnýt ráð og mögulegar hugmyndir um það hvernig auka megi heilsueflingu innan vinnustaðarins. Eftir að ráðleggingar hafa  verið gefnar þá gefst vinnustöðum tækifæri til að laga þá þætti sem krefjast nánari athugunar. Þeir vinnustaðir  sem taka þátt fá einnig sendan ítarlegan bækling með ráðleggingum um heilsueflingu á vinnustöðum.

Tímabilið frá 25. janúar 2008 til 25. janúar 2009 mun liggja til grundvallar mati á verkefninu. Matið mun fara þannig fram að fulltrúi vinnustaðarins verður beðinn um að svara áðurnefndum spurningalista aftur til að meta framfarir. Einnig þarf að skila inn lýsingu á því sem gert hefur verið í heilsueflingarmálum á vinnustaðnum yfir þetta tímabil. Þessi lýsing mun verða eitt helsta matsgagn þeirra sem að verkefninu standa. Vinnustaðir geta einnig fengið stig fyrir að taka þátt eða standa fyrir atburðum í tengslum við heilsueflingu og forvarnir og því er mikilvægt að haldið sé utan um þær upplýsingar fyrir hvern vinnustað. Athygli er þó vakin á því að ekki er nóg að taka einungis þátt í atburðum. Tilgangur verkefnisins er að varanlegar breytingar eigi sér stað á menningu vinnustaða. Lögð verður áhersla á að vinnustaðir móti sér stefnu í heilsueflingarmálum. Þátttaka í atburðum er þó aðeins af hinu góða og getur verið góð leið til þess að hvetja og styðja starfsmenn til heilsueflingar. 

Dæmi um atburði:
 
Skokkhópur innan fyrirtækja
Ávaxtaskálar inn á deildum
Hollusta í mötuneyti
Aðgangur að drykkjarvatni
Leiðir til að minnka streitu
Tóbaksvarnarfræðsla
100% reykleysi
Áfengisleysi
Þátttaka í Kvennahlaupi
Þátttaka í Maraþoni Reykjavíkur
Þátttaka í Hjólað í vinnuna
Þátttaka í  streitulausa deginum
Þátttaka í megrunarlausa deginum
Þátttaka í golfmóti
Heilsuvika

Frestur til þess að skrá sig er til 25. janúar 2008.

Þeir vinnustaðir sem skuldbinda sig til að taka þátt í verkefninu og uppfylla þær kröfur sem gerðar verða til fyrirmyndar vinnustaða eiga möguleika á því að verða valdir sem fulltrúar Íslands á ráðstefnu um heilsueflingu á vinnustöðum sem haldin verður í Róm vorið 2009.

Til að fá nánari upplýsingar um hvatningarverkefnið „Heil og sæl í vinnunni“ er hægt að senda fyrirspurn á netföngin thora@ver.is eða dora@lydheilsustod.is eða með því að senda fyrirspurn hér á síðunni


 


 

                   

    





© 2005 Vinnueftirlit ríkisins | Landsnet um heilsueflingu á vinnustöðum Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - sími 550-4600 - heilsuefling@heilsuefling.is