Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.
Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.
Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:
Snælandsskóli hefur í tæp tvö ár unnið að þróunarverkefni undir heitinu: Heilbrigð sál í hraustum líkama. Það verkefni nær til alls skólasamfélagsins, nemenda, foreldra og starfsmanna. Það var því kærkomin viðbót við það að geta tekið þátt í verkefninu Heil og sæl í vinnunni og eflt þannig þann þátt sem snýr að starfsmönnum. Það sem skólinn hefur gert varðandi þætti til eflingar andlegri, líkamlegri og félagslegri líðan starfsmanna er meðal annars:
• Reynt er að hafa sem mestan sveigjanleika hvað varðar vinnutíma
• Í stað hefðbundinna funda er reglulega boðið upp á samveru þar sem heilbrigði og hollusta er í hávegum höfð, má þar nefna, gönguferðir, stafagöngu, keilu, dans, leiki, safnaferðir o.fl.
• Öllu starfsfólki hefur verið boðið upp á heilsufarsskoðun og lífsstílsráðgjöf
• Verið er að vinna á áhættumati og áætlun um forvarnir
• Starfsmönnum gefst kostur á að kaupa mjög ódýr reiðhjól
• Skipulegar gönguferðir voru í hverri viku sumarið 2007 og stefnt að slíku sumarið 2008
• Fyrirlestrar um forvarnir o.fl.
• Þátttaka í Lífshlaupinu, vinnustaðakeppni. Þar voru 5 tíu manna lið sem kepptu innan vinnustaðarins og fékk sigurliðið góð verðlaun í lokin. Mikill metnaður og barátta einkenndu keppnina sem varð mörgum hvatning til meiri útiveru þann tíma sem keppnin stóð yfir.
Næsta verkefni umsjónarmanna verkefnisins er að móta stefnu um heilsueflingu til framtíðar og festa í sessi þau verkefni sem þegar er unnið að.