Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.
Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.
Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:
Hjá Marel er sífellt eitthvað um að vera í heilsuverndarmálunum. Kappsemi og stöðugar umbætur eru sterkt einkenni á menningu fyrirtækisins og á það ekki síst við um heilsuvernd. Þátttaka í og áhugi starfsmanna á hvers kyns heilsuvernd er almennt góð og reglulega er boðið upp á viðburði sem stuðla að heilsuvernd af einhverju tagi. Er þá oftar en ekki stuðst við það sem haft er að orði innan fyrirtækisins að ef að þurfi að koma einhverju í verk þá þurfi bara að halda keppni til að fá fólk til að taka þátt. Glöggt dæmi um þetta er keppni í heilsuátaki sem starfsmannafélag Marel stóð fyrir sl. ár þar sem hópar og einstaklingar kepptu um vegleg verðlaun.
Heilsuverndarstarf fyrirtækisins byggir á því atriði í starfsmannastefnu fyrirtækisins að: „Marel mun stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna sinna með vinnuvernd í formi fyrirbyggjandi aðgerða“. Af þessu sést að fyrirtækið styður fyrst og fremst við fyrirbyggjandi aðgerðir í því formi að veita starfsmönnum tækifæri til að sinna heilsurækt á vinnutíma, góða aðstöðu og styrki til íþróttaiðkunar. Miðast starfið fyrst og fremst við að styðja hópa fremur en einstaklinga. Til þessa starfs hefur Marel sl. þrjú ár verið með heilsuverndar-samning við Heilsuverndarstöðina (áður InPro) við að móta markvissar aðgerðir í þessum tilgangi.
Af skipulagðri starfsemi má nefna fyrirbyggjandi heilsufarsskoðanir starfsmanna, bólusetningar, úttektir á vinnuaðstöðu og fræðslu um líkamsbeitingu við vinnu sem býðst öllum starfsmönnum. Íþróttaaðstaða fyrirtækisins er sérlega góð með tveimur fjölnota íþróttasölum og lyftingasal. Er aðstaðan mikið notuð, t.a.m. til að stunda borðtennis, körfubolta og síðast en ekki síst veggtennis sem er mjög vinsæl íþrótt í Marel.
Öðru hvoru eru í gangi átaksverkefni hjá fyrirtækinu og hefur starfsmannafélagið tekið þar virkan þátt, t.a.m. með þemadögum þar sem boðið hefur verið upp á nudd og slökun en einnig fyrirlestra um heilsufæðisgerð og barnauppeldi, því heilsuvernd er jú ekki bara líkamleg.
Við erum einnig það sem við innbyrðum og fyrir stuttu var fenginn næringarráðgjafi og gerð könnun á óskum starfsmanna um framboð á fæði í mötuneyti til að stuðla að enn hollara matarræði starfsmanna.
Af óformlegri heilsuverndarstarfsemi, sem fyrirtækið styður við, má nefna töluvert sjálfsprottið hópstarf sem nýtir sér aðstöðu innan fyrirtækisins. Hóparnir hafa verið misjafnlega virkir en flestir íþróttalegs eðlis, s.s. jeppaklúbbur, golfarar og fótboltabullur. Einnig hafa hljómsveitir fengið aðstöðu að láni. Þessa dagana eru einna virkastir „Boot camp” og yogahópur sem ráða til sín þjálfara og æfa þrisvar í viku í hádeginu.
Mikið og gott starf hefur verið unnið í heilsuverndarmálum hjá Marel en í metnaðarfullu fyrirtæki má þó alltaf gera betur. Marel hefur fyrst og fremst einbeitt sér að líkamlegri og félagslegri velferð starfsmanna. En heilsa er svo margt meira en bara líkamleg og er Marel þátttakandi í heilsuverndarverkefninu Heil og sæl í vinnunni til þess að geta sinnt heilsuverndarstarfi sínu á enn heildstæðari hátt í ár en verið hefur. Við bindum miklar vonir um að nýta okkur tækifærið til að læra enn meira um heilsuvernd af öðrum sem einnig taka þátt í verkefninu.
Texti: Bryndís Ernstdóttir,
Mannauðsdeild Marel.