Af hverju heimasíða

Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.

Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.

Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:

 

     Lýðheilsustöð

Forsíða Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum. Smella á myndina til að skoða bæklinginn


Lyfjastofnun
Lyfjastofnun

Það er margt sem vinnu-staðir geta gert til að stuðla að andlegri heilsueflingu og þá er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða för. Listahátíð Lyfjastofnunar er gott dæmi um frábæra hugmynd í þá veru.

Magnús Jóhannsson, einn af forsprökkum hátíðarinnar, læknir hjá Lyfjastofnun var fús til að deila hugmyndinni af þessu frábæra framtaki með okkur þegar við óskuðum eftir stuttu viðtali við hann.

Magnús starfar einnig hjá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræðum og þar var haldin slík hátíð fyrir einum 10 — 12 árum. Það tókst svo vel til að Magnús ákvað að halda aftur slíka hátíð og þá á Lyfjastofnun.

Skipulagning hófst fyrir síðustu jól en dróst aðeins á langinn eins og oft vill verða og var hátíðin formlega opnuð með hækkandi sól þann 29. febrúar sl. Í tilefni þess var haldin veisla eftir að vinnu lauk.  Sýningin stóð formlega yfir í viku þó svo að enn séu einhver verkanna til sýnis.

Starfsmenn Lyfjastofnunar eru  35 og alls tóku 15 manns þátt í sýningunni. Ýmislegt handverk var til sýnis og má þar t.d. nefna málverk, ljósmyndir, handgerða skartgripi, jólaföndur og ýmislegt tengt áhugamálum starfsmanna (t.d. servíettu– og bílasöfn). Gripunum var smekklega komið fyrir á göngum og í fundarherbergi svo dæmi sé tekið.
Magnús segist vera sannfærður um það að framtak sem þetta þjappi fólki saman þar sem tækifæri gefst til þess að kynnast nýrri og óþekktri hlið samstarfsmanna. Starfsfólk kynnist hvert öðru á nýjum forsendum.

Hugmyndin hjá þeim sem stóðu að hátíðinni var einfaldlega sú að gera eitthvað skemmtilegt saman, efla starfsandann og fá smá tilbreytingu í daglegt amstur. Magnús telur einnig að það að halda lokahátið með mökum eftir formlegan vinnutíma hafi gert hátíðina enn skemmtilegri en að henni lokinni hélt gamanið áfram og  flestir fóru saman út að borða.

Magnús telur hátíðina hafa tekist mjög vel og skapaði hún miklar umræður þar sem almenn ánægja með framtakið ríkti meðal starfsmanna. Magnús stefnir á að setja upp svipaða sýningu hjá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræðum fljótlega. Einn af kostunum við framtakið er að sjálfsögðu sá að lítill sem enginn kostnaður fylgir því fyrir utan nokkra nagla og smá skerf af vinnugleði.





© 2005 Vinnueftirlit ríkisins | Landsnet um heilsueflingu á vinnustöðum Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - sími 550-4600 - heilsuefling@heilsuefling.is