Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.
Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.
Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:
Árið 2003 var farið af stað með heilsueflingarátak innan Íslandspósts sem kallast Heilsupósturinn. Undir merkjum Heilsupóstsins bjóðast starfsmönnum reglulegar heilsufarsmælingar ásamt ráðgjöf og fræðslu á sviði heilsuræktar. Til gamans má geta þess að fyrsta árið fuku um 700 kg af fitu en 100 kg af vöðvum komu í staðinn.
Heilsupósturinn á fimm ára afmæli á þessu ári og má segja að hann sé orðinn lífsstíll hjá stórum hópi starfsmanna, en þar setja menn sér bæði persónuleg og sameiginleg markmið. Þar sem engir tveir einstaklingar eru eins er mikilvægt að vera meðvitaður um hvað hentar hverjum og einum. Við getum öll komist á toppinn, spurningin er hversu hátt við setjum markið. Slagorðin „Vertu með“ eða „Haltu áfram“ eru í fullu gildi.
Á hverju ári hafa um 500 starfsmenn tekið þátt í Heilsupóstinum. Allir ,sem taka þátt, fá veglega gjöf og leitað er eftir ýmiss konar tilboðum fyrir starfsmenn hjá stofnunum og fyrirtækjum. Markmiðið er að fá sem flesta til þess að huga að betra líferni og þar með auka lífsgæðin. Þátttaka á landsbyggðinni hefur aukist ár frá ári og nær því heilsueflingin til starfsmanna hringinn í kringum landið. Þar taka menn sig saman og ganga á sín heimafjöll.
Mismunandi áherslur hafa verið milli ára, til dæmis voru svokallaðir Heilsupóstar valdir árið 2005 en það voru einstaklingar sem settu sér markmið og fylgst var með árangri þeirra á innranetinu og póstblöðum. Á árinu 2007 var lögð áhersla á gönguferðir og útiveru. Styttri og lengri gönguferðir eru skipulagðar á fjöll og sléttlendi. Í fjallgöngunum settu sumir sér það markmið að komast á topp Esjunnar en margir starfsmenn náðu toppnum í bókstaflegri merkingu þann 19. maí þegar hátt í 70 manns gengu á Hvannadalshnjúk. Á þessu ári verður gengið yfir Fimmvörðuháls helgina 23.-25. maí næstkomandi. Reiknað er með mikilli þátttöku og eru menn þegar byrjaðir að æfa sig fyrir ferðina.
Á hverju vori er svo haldin uppskeruhátíð þar sem Heilsupóstar gleðjast saman yfir árangri vetrarins, verðlaun eru veitt, ásamt ýmsum skemmtilegum uppákomum.
Hvað er að vera líkamlega hraustur?
Að geta unnið fullan vinnudag með einbeitinguna í lagi allan tímann.
Að geta sinnt fjölskyldu og áhugamálum sínum fullur af orku án þess að finna fyrir þreytu eða áhugaleysi.
Áður en þú byrjar að hreyfa þig skaltu gera þér grein fyrir því hvað þú vilt fá út úr æfingunum og hver markmið þín eru með þjálfuninni.
Texti: Arndís Guðmundsdóttir,
fræðslufulltrúi hjá Íslandspósti