Af hverju heimasíða

Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.

Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.

Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:

 

     Lýðheilsustöð

Forsíða Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum. Smella á myndina til að skoða bæklinginn


Heilsuleikskólinn Krókur
Heilsuleikskólinn Krókur

Frá árinu 2003 hefur fyrirtækið Skólar ehf, sem rekur Heilsuleikskólann Krók í Grindavík, boðið starfsmönnum í 8 vikna heilsuátak í byrjun hvers árs. Fyrsta árið fengum við íþróttakennara til að halda fyrirlestur um mikilvægi hreyfingar og holls mataræðis.

Farið var af stað með gönguhópa og leikfimi í sal skólans þar sem heimsfrægir líkamsræktarþjálfarar, þau Ágústa Johnson og TAE-BO meistarinn Billy Blanks með hjálp myndbandstækis og sjónvarps sáu um spriklið. Þetta uppátæki okkar hafði stórgóð áhrif á móralinn og heilsuna því mun minna var um veikindi þennan vetur.

Í kjölfarið fór ein úr hópi starfsmanna á einkaþjálfaranámskeið og næstu þrjú árin sá hún um að skipuleggja heilsuátakið.

Bauð hún upp á pallatíma, stöðvaþjálfun m.m. í sal skólans þrisvar sinnum í viku, var með ráðgjöf og mældi árangur.
Sífellt fleiri af okkur fóru að taka þátt og var einkaþjálfarinn hvattur til að halda áfram að vera með leikfimi í salnum eftir átakið allt árið sem hún og gerði. Lítilsháttar gjald var greitt fyrir hvern mánuð og nú voru venslafólki okkar og  foreldrum leikskólans boðið að vera með.
Í ár var starfsmönnum afhent opið líkamsræktarkort í Orkubúinu, líkamsræktarstöð bæjarins, í 8 vikna átak. Einkaþjálfarinn okkar sér áfram um einstaklingsráðgjöf, mælingar og skráningu því verðlaun eru ávallt veitt þeim sem sýna bestan árangur í átakinu.
 Verðlaunin eru metin út frá mætingu og líkamsástandi.

Við mælum hiklaust með átaki sem þessu þar sem það hefur mjög jákvæð áhrif í starfsmannahópnum og má segja að 22 starfsmenn af 27 stundi nú reglulega hreyfingu. Samskipti starfsfólks verða jákvæðari, gleði verður ríkjandi og heilsan eykst því veikindadögum fækkar ár frá ári. Það má með sanni segja að heilsuefling sem þessi hafi áhrif til frambúðar því ávallt taka fleiri þátt og þjálfa lengur þ.e. gera hreyfingu að lífsstíl því það er markmiðið.

Texti: Hulda Jóhannsdóttir, leikskólastjóri


 





© 2005 Vinnueftirlit ríkisins | Landsnet um heilsueflingu á vinnustöðum Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - sími 550-4600 - heilsuefling@heilsuefling.is