Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.
Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.
Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:
Eldhús – matsalir (ELM) hóf heilsueflingu á meðal starfsmanna sinna í haust og munu þær standa fram á vor. Heilsueflingin er margþætt og felst m.a. í leiðsögn og hvatningu til heilsueflingar, reglulegum mælingum á heilsufari og ýmsum heilsueflandi viðburðum.
Markmið heilsueflingar
Heilsueflingunni er ætlað að vekja starfsmenn ELM til umhugsunar um eigin heilsu, leiðbeina þeim um hvernig hver og einn getur sjálfur stuðlað að bættri heilsu og hvetja alla til aukinnar hreyfingar. Einnig er markmiðið að leiðbeina starfsmönnum um hreyfingu sem hentar þeim, þeirra aldri og bakgrunni.
Sóttur stuðningur til margra átta
Skrifstofa starfsmannamála hefur komið ötullega að heilsueflingunni með ELM með heilsufarsskoðun í upphafi sem endurtekin verður í vor. Sjúkraþjálfun LSH aðstoðar einnig við þann hlut sem snýr að vinnuvernd starfsmanna sem er spennandi verkefni. Þeir þættir sem mældir eru og unnið verður með eru blóðþrýstingur, beinþéttni, næring, reykingavarnir, geð¬heilbrigði og andleg líðan starfsmanna. Loks má geta þess að heilsueflingin hefði eflaust ekki orðið að veruleika án fjölmargra styrkja sem ELM tókst að afla til að fjármagna hina ýmsu viðburði.
Upplýstir starfsmenn
Í framhaldi af mælingum hafa fræðsluerindi verið haldin og í ljós hefur komið mikill áhugi meðal erlendra starfsmanna. Þeim sem greindust með of háan blóðþrýsting eða með lækkaða beinþéttni miðað við aldur hafa fengið aðstoð við að leita sér frekari aðstoðar. Ýmsum bæklingum hefur verið dreift og þegar í ljós kom að margir starfsmenn voru ekki meðvitaðir um þá heilsuræktarstyrki sem stéttarfélögin bjóða voru þeir kynntir og starfs¬menn aðstoðaðir við að fylla út umsóknirnar. Loks eru bundnar afar miklar vonir við reykleysisnámskeið sem verða á vinnutíma með túlkum eftir þörfum og í boði er mikil aðstoð til að hætta að reykja. Nú í desember fá allir starfsmenn gefins 10 tíma sundkort sem heilsueflandi jólagjöf.
Heilsueflandi viðburðir
Ýmsir viðburðir hafa orðið eftir að heilsuátakið hófst og munu þeir halda áfram á nýju ári. T.a.m. gönguhópur, farið verður í sund og stafgöngu og haldið verður áfram með hugmyndir í sambandi við jóga svo ekki sé minnst á sundnámskeið fyrir þá sem vilja bæta sundkunnáttu sína. Settar hafa verið upp skráningartöflur þar sem starfsmenn skrá inn hreyfingu sína dag frá degi þannig að allir geti fylgst með og hvatt hvorn annan áfram.
Allra ávinningur
ELM lítur á heilsueflinguna sem nokkuð sem allir geta tekið þátt í óháð aldri og þjóðerni. Mikilvægt er að leggja áherslu á að ekki er um átak að ræða heldur eflingu á heilbrigðum lífstíl til framtíðar.
Þrátt fyrir lykiláherslu á langtímaávinning eru ákveðnir hvatar fyrir því að starfsmenn nái sem bestum árangri á meðan á heilsueflingunni stendur. Þeir starfsmenn sem ná bestum árangri og taka bestan þátt munu því hljóta verðlaun í lokin.
Fjölmenningarlegur vinnustaður
Starfsmenn ELM eru 140 talsins og eru um 70% þeirra af erlendum uppruna, frá alls 18 þjóðlöndum. Vinnustaður er því mjög fjölmenningarlegur og er ætíð tekið mið af því í starfsemi ELM og þar með við heilsueflinguna. Því eru allar upplýsingar settar fram á ensku, pólsku og tælensku auk íslenskunnar auk þess sem túlkar vinna náið með ELM við uppákomur og fræðsluerindi.
Heilsuefling ELM hefur til þessa haft jákvæð áhrif á starfshópinn, fyrir heilbrigði starfsmanna og fyrir starfsandann þar sem fjölbreyttur vinnustaður hefur sameinast um aukið heilbrigði.