Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.
Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.
Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:
Geðheilsa skiptir meginmáli í mannlífi, félagslífi og efnahagslífi hvers þjóðfélags. Mikilvægt er að hlúa vel að einstaklingnum en það er ekki nóg til að langtímaárangur náist, þ.e. til að vinnufærni og afkastageta haldist. Fjárfesting í mannauði þýðir líka að fjárfesta þarf í heilsu starfsmanna og velferð á vinnustaðnum: byggja upp öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi fyrir líkamlega og sálfélagslega þætti þar sem grunnatriði heilbrigðs lífernis eru í fyrirrúmi.
Vakin er athygli á því að hið árlega hvatningarverkefni ÍSÍ, “Hjólað í vinnuna”, hefst 6 maí n.k og stendur til 26. maí .
Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu “Hjólað í vinnuna”. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast þau sex ár sem verkefnið hefur farið fram
Að hjóla í vinnuna er fyrirtæks heilsurækt auk þess sem það sparar kostnað, dregur úr umferðarþunga og stuðlar að heilnæmara lofti. Þáttaka í átakinu Hjólað í vinnuna er ennfremur gott tækifæri til að auka samheldni meðal starfsmanna. Til að gera keppnina enn skemmtilegri er tilvalið að skora á aðrar deildir, vinnustaði, samkeppnisaðila, sveitarfélög að taka þátt.
Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðunni: http://www.hjoladivinnuna.is/.
Í frétt á Eyjunni (www.eyjan.is) kemur fram að Samtök um bíllausan lífsstíl hvetji fyrirtæki til að greiða starfsfólki, sem ekki nýtir einkabíla á leið til og frá vinnu, samgöngustyrki. Í síðustu viku sendu samtökin út rúmlega 200 bréf þessa efnis á öll stærstu fyrirtæki landsins. Kristján Möller samgönguráðherra fékk fyrsta bréfið afhent persónulega. Upplýsingar um bíllausan lífsstíl og stefnu samtakana má lesa á vefsíðu samtakanna.
Fram kemur í tilkynningunni að Samtök um bíllausan lífsstíl hafa það meginmarkmið að stuðla að bættum ferðavenjum á höfuðborgarsvæðinu og telja það afar þýðingarmikið málefni í nútímasamfélagi.
Bent ert á að flestir Íslendingar fari til vinnu einir á einkabíl, með tilheyrandi umferðarþunga, slæmum loftgæðum og kostnaði, sem lendi á þeim sjálfum, vinnuveitendum þeirra og samfélaginu öllu. Þær ferðavenjur verði ekki skýrðar með landfræðilegri legu, veðráttu, þéttleika byggðar eða öðrum utanaðkomandi þáttum eins og dæmi frá nágrannalöndum okkar sanni, vandamálið liggi í hefðum og hugarfari. Fjölmargir aðrir ferðamátar séu í boði, svo sem að taka strætó, hjóla, ganga, skokka, fara á línuskautum eða í samfloti með öðrum, sem allir séu hagkvæmari, stuðli að bættri lýðheilsu og bæti umhverfi okkar.
Tímabilið 10. janúar 2008 til 5. janúar 2009 mun liggja til grundvallar mati á þátttöku vinnustaða í verkefninu.
Allir þátttakendur í verkefninu “Heil og sæl í vinnunni” koma til greina sem fyrirmyndavinnustaðir hvað varðar heilsueflingu. Þeir vinnustaðir sem hljóta viðurkenningu verða valdir af dómnefnd út frá þeim upplýsingum sem berast frá vinnustöðunum.
Matið mun fara þannig fram að vinnustaðir eru beðnir um að:
1) Fylla út meðfylgjandi gátlista um heilsueflingu á vinnustöðum – fyrirmyndarvinnustaðir.
Gátlistinn er byggður á rafræna spurningalistanum um heilsueflingu á vinnustöðum sem að verkefnið byggir á. Hann tekur til almennrar innleiðingar heilsueflingar á vinnustöðum ásamt fimm þáttum sem lögð var áhersla á. Þeir eru: tóbaksvarnir, hollt mataræði, hreyfing, forvarnir gegn streitu/andlegu álagi og áfengisvarnir.
2) Skrifa stutt yfirlit / lýsingu á því sem gert hefur í heilsueflingarmálum innan fyrirtækisins á matstímabilinu þ.e. 10. janúar 2008 til 5. janúar 2009 (ein til tvær A4 síður)
Mikil áhersla er lögð á að hvert og eitt fyrirtæki skrifi niður lýsingu á því sem gert hefur verið í til þess að efla heilsu og forvarnir á þessum tíma. Einnig verður tekið mið af því hvort vinnustaðir hafi tekið þátt eða staðið fyrir atburðum í tengslum við heilsueflingu og forvarnir og því er mikilvægt að fyrirtæki haldi utan um þær upplýsingar og skili inn. Bæði geta fyrirtæki nýtt sér atburði sem er nú þegar til staðar í samfélaginu og staðið fyrir sínum eigin atburðum. Lögð er þó megináhersla á það að vinnustaðir hafi mótað sér stefnu er varði heilsueflingu og taki á raunverulegum þörfum innan vinnustaðanna. Þátttaka í atburðum er þó aðeins af hinu góða og getur verið góð leið til þess að hvetja og styðja starfsmenn til heilsueflingar.
3) Svara aftur rafræna spurningalistanum sem þið fylltuð út í upphafi verkefnisins til þess að hægt sé að sjá hvort að vinnustaður ykkur hafi hækkað sig um flokk (http://www.heilsuefling.is/heilsuefling/is/heil_og_sael_i_vinnunni_(move_europe)/spurningalisti/ )
Mat á þátttöku vinnustaða í verkefninu mun verða framkvæmt af Vinnueftirlitinu og Lýðheilsustöð. Mögulegt er að verða valin „fyrirmyndarvinnustaður“ út frá einum eða fleiri þáttum sem nefndir hafa verið hér að ofan og í flokknum stærri og minni vinnustaðir.
Skila verður matsgögnunum (á þó ekki við um rafræna spurningalistann) útfylltum fyrir 15. janúar 2009
Vinsamlegast sendið matsupplýsingarnar á eftirfarandi heimilisfang:
Vinnueftirlit ríkisins
b.t. Ásu Guðbjargar Ásgeirsdóttur
Bíldshöfði 16
110 Reykjavík
Tölvupóstfang: asa@ver.is
Sími: 550 – 4657
Vefsíða: www.heilsuefling.is

Garðabær
Grunnskólinn í Bolungavík
Heilsustofnun NLFÍ
Héraðsdómur Reykjavíkur
Intrum
Landsbankinn
Landsnet
Landspítali - háskólasjúkrahús
Landspítalinn - eldhús og matsalir
Leikskjólinn Hof
Leikskólinn Hlíðarberg
Leikskólinn Urðarhóll
Sjálfsbjörg
Sjóvá
Sjúkrahúsið á Akureyri - FSA
Actavis er fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja. Fyrirtækið starfar í yfir 40 löndum en höfuðstöðvarnar eru á Íslandi. Starfsmenn á Íslandi eru 617 með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Actavis er fyrirmyndardæmi um stóran vinnustað sem vinnur að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsueflingu á kerfisbundinn máta og byggir aðgerðaáætlanir sínar í heilsueflingu á nákvæmum greiningum og viðheldur stöðugri framþróun.
Lyngholt er fjögurra deilda leikskóli sem starfar í anda hugmynda Howards Gardner um fjölgreind. Á leikskólanum eru börn frá aldrinum 1- 6 ára og starfsmenn eru 26. Allir geta eitthvað, enginn getur allt eru einkunnarorð skólans og leiðarljós þeirra í öllu starfi er að hver og einn fái notið sinna styrkleika því þannig byggist upp sjálfsmyndin. Lyngholt er fyrirmyndardæmi um lítinn vinnustað sem vinnur að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsueflingu án þess að það hafi mikil fjárútlát í för með sér. Stofnaður var lýðheilsuhópur og markmið hans er að skoða allt starf leikskólans út frá heilsusjónarmiðum.
Hjá Íslandspósti starfa um 1200 starfsmenn víðs vegar um landið og því um stóran hóp að ræða þótt starfsstöðvar séu misstórar. Vegna fjölbreyttra starfa innan fyrirtækisins eru vinnuaðstæður fólks mjög ólíkar. Íslandspóstur er fyrirmyndardæmi um stóran, dreifðan og fjölbreyttan vinnustað sem leggur sig fram um að koma til móts við mismunandi þarfir starfsmanna og taka tillit til ólíkra starfsstöðva. Heilsuefling er ekki ný af nálinni hjá þessu fyrirtæki heldur er um áframhaldandi góða vinnu að ræða.
Í Snælandsskóla eru 73 starfmenn og nemendur eru 435. Til fyrirmyndar er þegar heildræn sýn á heilsueflingu í skóla nær bæði til nemenda og starfsmanna skólans enda er skóli einnig “vinnustaður” barnanna. Heilsuefling á nokkra sögu í Snælandsskóla og má meðal annars benda á að þau tóku þátt í þróunarverkefninu ,,Heilbrigð sál í hraustum líkama”. Þetta sýnir jafnframt að þó að vinnustaður sé með ákveðin verkefni í gangi útilokar það ekki að taka upp fleiri verkefni og nýta þar með samlegðaráhrif.
