Hvítur bakgrunnurBlár bakgrunnurRauður bakgrunnurGrænn bakgrunnurSvartur bakgrunnurFeitletrað leturVenjulegt letur



Af hverju heimasíða?

Þessi heimasíða er ætluð sem upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu.

Hér verður ýmis fróðleikur, upplýsingar um verkefni, upplýsandi tenglar og margt fleira. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri eða spurningar endilega hafðu þá samband við okkur.

Eftirtaldir aðilar standa að þessari síðu:

 

     Lýðheilsustöð

Forsíða Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum. Smella á myndina til að skoða bæklinginn


Heilsuefling á vinnustöðum
14. maí 2010

Það er mikilvægt að efla og vernda geðheilsuna

Geðheilsa skiptir meginmáli í mannlífi, félagslífi og efnahagslífi hvers þjóðfélags. Mikilvægt er að hlúa vel að einstaklingnum en það er ekki nóg til að langtímaárangur náist, þ.e. til að vinnufærni og afkastageta haldist. Fjárfesting í mannauði þýðir líka að fjárfesta þarf í heilsu starfsmanna og velferð á vinnustaðnum: byggja upp öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi fyrir líkamlega og sálfélagslega þætti þar sem grunnatriði heilbrigðs lífernis eru í fyrirrúmi.

Meira...


01. maí 2009

Átaksverkefnið Hjólað í vinnunna hefst 6. maí

Vakin er athygli á því að hið árlega hvatningarverkefni ÍSÍ, “Hjólað í vinnuna”, hefst 6 maí n.k og stendur til 26. maí . Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu “Hjólað í vinnuna”. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa tekið

Meira...

08. apríl 2009

Fyrritæki hvött til að styrkja starfsmenn sem nýta sér bíllausan samgöngumáta

Í frétt á Eyjunni ( www.eyjan.is ) kemur fram að Samtök um bíllausan lífsstíl hvetji fyrirtæki til að greiða starfsfólki, sem ekki nýtir einkabíla á leið til og frá vinnu, samgöngustyrki. Í síðustu viku sendu samtökin út rúmlega 200 bréf þessa efnis á öll stærstu fyrirtæki landsins. Kristján Möller samgönguráðherra fékk fyrsta bréfið afhent persónulega. Upplýsingar um bíllausan lífsstíl og stefnu samtakana má lesa á vefsíðu samtakanna . Fram kemur í tilkynningunni

Meira...

27. mars 2009

Heil og sæl - viðurkenningar veittar

Fjórum fyrirtækjum og stofnunum, þ.e. Actavis, leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði, Íslandspósti og Snælandsskóla í Kópavogi, voru þann 25. mars s.l. veittar viðurkenningar sem fyrirmyndarvinnustaðir í átaksverkefninu Heil og Sæl í vinnunni. Átakið er hluti af samevrópsku verkefni er kallast Move Europe og er stýrt af Evrópska samstarfsnetinu um heilsueflingu a vinnustöðum ( www.enwhp.org ) þeir Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, og Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar veittu

Meira...


Evrópuverkefni
 
 
 

 
Íslensk verkefni
 
 
 
 


© 2005 Vinnueftirlit ríkisins | Landsnet um heilsueflingu á vinnustöðum Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - sími 550-4600 - heilsuefling@heilsuefling.is